Innskráning í Karellen
news

Gleðilega páska kæru vinir og vinkonur, foreldrar og börn

16. 04. 2019

Þessi tími ársins sko, hann er dásamlegur! Þegar lífið sigrar dauðann eins og segja má, í fallegum sálmi segir: Fræ í frosti sefur, fönnin ei grandar því.... Falleg fíngerð blóm stinga sér í gegn um snjóinn, svo hopar snjórinn fyrir hlýjum vindum og vorrigningunni, fuglarnir fara að verpa eggjum, lítil lömb eru farin að fæðast og börnin geta farið út á hárinu og höndunum við mikinn fögnuð :)

Við kennararnir í Eyrarskjóli erum afar þakklát fyrir þau forréttindi að fá að vinna með börnunum ykkar kæru foreldrar og fyrir það traust sem þið sýnið okkur með því að treysta okkur fyrir þeim alla daga. En nú erum við öll voða glöð að vera að fara í frí í nokkra daga og við vonum að þið munuð eiga dásamlega daga í leti og skemmtilegum athöfnum, skemmtilegri og gefandi samveru með ástvinum og vinum, nóg er nú um að vera í bænum okkar.

Bestu páska-gleði - kveðjur

Við öll í Eyrarskjóli :)

© 2016 - Karellen