Eins og fram kom á kynningarfundi sem sendur var út frá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða í gær, þá þurfum við að þrauka lengur við óbreytta stöðu í leik- og grunnskólum á Ísafirði og í Bolungarvík. Staðan er grafalvarleg og það er ljóst að við þurfum öll að girða okkur í brók og vanda okkur í 2 til 3 vikur (að minnsta kosti), til að eiga séns á því að lífið komist í fastar skorður á ný.
Þetta er vissulega svekkjandi, það er skrítið að mæta í vinnuna og það eru örfá börn og kennarar að mæta hvern dag. Við látum okkur dreyma um leikskóla sem iðar af lífi með öllum þeim fjölbreytileika sem það býður upp á. Við söknum ykkar allra, við söknum þess að knúsa og eiga gefandi samskipti við börnin og ykkur!
Á vefsíðu Ísafjarðarbæjar er þessi frétt: https://www.isafjordur.is/is/stjornsysla/frettir-og-utgafa/frettasafn/covid-19-tilkynning-vegna-leik-og-grunnskola-20-april
Á vefsíðu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða er þessi frétt:
20.04 2020 | Gylfi Ólafsson
Ponizej po Polsku
English below
Aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum hefur ákveðið í samráði við sóttvarnalækni, landlækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra næstu skref í afléttingu takmarkana.
Ísafjörður, Bolungarvík og Hnífsdalur
Takmarkanir sem settar voru 1. apríl verða enn óbreyttar eftir 26. apríl um óákveðinn tíma.
Síðustu vikuna hefur stór hluti þeirra smita sem greinst hafa á landinu verið á Vestfjörðum. Umdæmið sker sig nú úr á landsvísu bæði vegna fjölda dauðsfalla og fjölda smitaðra. Smitin eru þó nær eingöngu í Bolungarvík og á Ísafirði. Í skimun fyrir sjúkdómnum komu upp tilfelli sem ekki áttu sér skýra smitsögu.
Dýrafjörður, Önundarfjörður, Súgandafjörður og Súðavíkurhreppur
Sérstakar takmarkanir sem settar voru á 5. apríl falla úr gildi. Áfram gilda sömu takmarkanir og á landsvísu. Þar sem bæirnir eru hluti af atvinnusóknarsvæði norðanverðra Vestfjarða, hvetjum við fólk þó áfram til að fara með sérstakri gát.
Næstu skref
Aðgerðastjórn almannavarna fundar á degi hverjum og metur stöðuna og þörfina fyrir hertum aðgerðum. Búast má við að tekin verði frekari ákvörðun á grundvelli niðurstaðna úr sýnatökum og smitrakningu í byrjun næstu viku.
Tilkynning verður gefin út um leið og ástæða er til.
Wydział Ochrony Ludności i Zarządzania na Fiordach Zachodnich w porozumieniu z Szefem Epidemiologii oraz Wydziałem Ludności i Zarządzania Kryzysowego w Kraju podjeli następne kroki w zniesieniu ograniczeń.
Ísafjörður, Bolungarvík, Hnífsdalur
Ograniczenia które zostały ustalone 31. Marca i 1. Kwietnia pozostają bez zmian po 26. kwietnia na czas nieokreślony.
W ubiegłych tygodniach duża część zakażeń wykrytych w kraju miała miejsce na Fiordach Zachodnich. Obszar wyróżnia się obecnie na poziomie krajowym zarówno względem liczby zgonów, jak i liczy zarażonych osób. Jednak zakażenie występuje prawie i wyłącznie w Bolungarvíku i Ísafjörður. W badaniach pod kątem choroby zdarzały się przypadki, które nie miały wyraźnej historii zarażeń.
Flateyri, Suðureyri, Súðavík, Þingeyri
Szczegółowe ograniczenia które zostały wydane 5. kwietnia zostają odwołane. Lecz nadal obowiązują ogólne zalecenia i ograniczenia, te same co na terenie całego kraju . Ponieważ miasta są częścią miejsc prac na Fiordach Zachodnich, zachęcamy nadal ludzi o szczególną ostrożność.
Następne kroki
Nie podjęto jeszcze żadnych decyzji o ograniczeniach które mają wejść 4. maja. Ewolucja pandemii w sumie zadecyduje o tym czy będzie można iść za krajem jak zostaną zmniejszone ograniczenia, nie można wykluczyć tego że ograniczenia będą zmniejszane wolniej niż w innych miejscowościach.
Wydział Ochrony Ludności i Zarządzania spotyka się codziennie, aby ocenić status i potrzebę zahartowanych operacji. Można oczekiwać dalszych decyzji na podstawie wyników próbkowania i śledzenia infekcji na początku przyszłego tygodnia.
Powiadomienie zostanie wydane, gdy tylko będzie taka potrzeba.
Restrictions were put in place 1st April and 5th April. These applied to, among other things, schools, gatherings of all kinds and the operation of shops in the Westfjords.
For Flateyri, Suðureyri, Súðavík and Þingeyri, these restrictions will be lifted in the morning of 27th April. Nationwide restrictions still apply.
For Bolungarvík, Hnífsdalur and Ísafjörður, restrictions will still apply until further notice. A large proportion of confirmed cases nationwide have been in these towns, requiring the prolongation of the restrictions.
Með kærleikskveðju
Ingibjörg og Guja