Innskráning í Karellen

Foreldrafélag Eyrarskjóls


Foreldrar / forráðamenn eru minntir á og hvattir til að greiða félagsgjöld foreldrafélagsins. Greiðsuseðlar eru sendir út tvisvar á ári. Ekki er skylda að greiða þetta gjald en augljóst má vera að félagið á auðveldara með að ná markmiðum sínum með sterkari fjárhag.

Allar góðar hugmyndir til stjórnar um starfsemi eða viðburði á vegum félagsins eru vel þegnar. Að lokum minnum við á Tengil á Facebook-síðu foreldrafélagsins:

https://www.facebook.com/groups/273808126083705

Með von um gleðilegan vetur,

Stjórnin.

Lög Foreldrafélags Eyrarskjóls

  • 1. gr. Félagið heitir Foreldrafélag Eyrarskjóls
  • 2. gr. Félagar eru foreldrar eða forráðamenn barna í leikskólanum Eyrarskjóli
  • 3. gr. Markmið foreldrafélagsins er að stuðla að velferð barna með því meðal annars að vinna að:
  • a. aukinni samvinnu foreldra og starfsfólks.
  • b. því að auka samvinnu foreldra innbyrðis um starfsemi og aðbúnað leikskólans.
  • c. því að leggja hagsmunum barna lið bæði innan leikskólans og út á við.
  • 4. gr. Félagsgjald er ákveðið á aðalfundi. Gjaldið rennur í sjóð sem stendur straum af kostnaði við starfsemi félagsins. Gjaldið greiðist tvisvar á ári.
  • 5. gr. Kosning til stjórnar skal fara fram á aðalfundi. Stefnt skal að því að hver kjarni leikskólans eigi að minnsta kosti einn fulltrúa í stjórninni og auk þess skal starfsfólk kjósa sér einn fulltrúa til setu í henni. Stjórnin skal þar með skipuð eigi færri fulltrúum en sex. Æskilegt er að hluti fulltrúa sitji í stjórn í tvö ár í senn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Kjósa skal formann, gjaldkera og ritara.
  • 6. gr. Félagsmenn skulu móta leiðir að markmiðum félagsins á aðalfundi. Bókfæra skal allar ákvarðanir.
  • 7. gr. Stjórn félagsins hefur forgöngu um alla vinnu við starfsemi þess. Val verkefna og vinnu stjórnarmanna og annarra félagsmanna skal vera innan ramma markmiða félagsins og að því marki sem ákvarðana aðalfundar nýtur við, skal eftir þeim starfað. Stjórnin kemur svo oft saman sem þurfa þykir, þó ekki sjaldnar en mánaðarlega.
  • 8. gr. Aðalfund skal halda á tímabilinu 1. feb. til 31. mars ár hvert og skal boða til hans með auglýsingu með minnst viku fyrirvara. Dagskrá aðalfundar skal vera svo hljóðandi:
  • a. Skýrsla um starfsemi félagsins.
  • b. Reikningar félagsins.
  • c. Kosning til stjórnar.
  • d. Lagabreytingar.
  • e. Ákvörðun félagsgjalda.
  • f. Önnur mál.
  • 9. gr. Tillögur til lagabreytinga verða að hafa borist stjórn skriflega í síðasta lagi þremur dögum fyrir auglýstan fund. Lagabreytingar ná því aðeins fram að ganga að 2/3 fundarmanna greiði þeim atkvæði.
  • 10. gr. Fundir stjórnar eru opnir öllum félagsmönnum.

Matseðill vikunnar

Mánudagur - 22. apríl
Morgunmatur   Cheerios,lýsi,mjólk,ávexti Ofnæmisvakar: haframjólk,möndlumjólk
Hádegismatur grænmetis súpa,snitt brauð ,smjör Ofnæmisvakar: vegan snitsel með tómatsósa og gúrka
Nónhressing Brauð , smjör , marmelaði , ostur , mjólk Ofnæmisvakar: haframjólk
 
Þriðjudagur - 23. apríl
Morgunmatur   Ab súrmjólk , lýsi , múslí Ofnæmisvakar: hafrajógúst , soja jógúrt
Hádegismatur gufusoðin ýsa , kartöflur , rúgbrauð , smjör , tómatsosa , grænmeti Ofnæmisvakar: falafel bollur
Nónhressing brauð , álegg , smjör , mjólk , apli Ofnæmisvakar: haframjólk
 
Miðvikudagur - 24. apríl
Morgunmatur   cheerios , lýsi , mjólk , ávexti Ofnæmisvakar: haframjólk
Hádegismatur soðið slátur , kartöflur , uppstúfur , rófur Ofnæmisvakar: vegan kjötbollur
Nónhressing snæfjalla brauð , smjör , dönsk lifrarkæfa , mjólk , Ofnæmisvakar: haframjólk , gúrka
 
Fimmtudagur - 25. apríl
Morgunmatur   AB súrmjólk , lýsi , músli , Ofnæmisvakar: hafrajógúrt , soja jógúrt
Hádegismatur karrý kókos fiskur , grænmeiti karrýsósa , hyðisgrjon , papriku strimlar Ofnæmisvakar: vegan snitsel
Nónhressing brauð , smjör , smurostur , ostur , gúrka , mjólk Ofnæmisvakar: haframjólk
 
Föstudagur - 26. apríl
Morgunmatur   cheerios,lýsi,mjólk,ávexti Ofnæmisvakar: haframjólk,möndlumjólk
Hádegismatur grænmetis bollur,kínóa,,karrý,sósa,gúrka
Nónhressing Brauð,mjólk,smjör,álegg Ofnæmisvakar: haframjólk,möndlumjólk
 
© 2016 - Karellen