Grænikjarni
Kjarnastýra:
Lilja Debora Ólafsdóttir
Grænikjarni er stúlknakjarni og þar eru kátar og líflegar/ ir tveggja og þriggja ára stúlkur og drengir. En í vetur er staða kynjanna þannig í skólanum að Grænikjarni er blandaður. Stóran hluta úr degi er börnunum skipt í 4 hópa Þ-hóp, Æ-hóp og Ö-hóp og Á og á hver hópur sinn fasta kennara allan veturinn. Í hópunum vinna börnin skemmtileg verkefni með kennurunum sínum og æfa sig til dæmis í framkomu, umhyggju, samskiptum, kjarki, myndmennt, umhverfismennt, vísindum og ótal mörgu öðru. Svo höfum við frábæra kennara sem eru alltaf tilbúnir að veita umhyggju og athygli. Við erum frábær
Daglega hittir hver hópur á Grænakjarna vinahópinn sinn og jafnaldra, drengina á Gulakjarna.