Innskráning í Karellen
news

Blái Kjarni með sýningu

03. 11. 2023

Hér á skrifstofunni var bankað á hurðina í gær og þar stóð blái kjarni í röð og réttu börnin okkur þetta boðskort.

Í dag mættum við auðvitað tímanlega á söngfund ásamt öllum hinum á leikskólanum sem fengu líka boðskort. Þau fluttu fyrir leikskólann atriði sem þau hafa verið að æfa með Björk í söngsmiðju (hún fer á milli kjarna með smiðjur) og höfðu svo börnin ásamt kennurum sínum tekið þetta auðvitað alla leið, hannað búning og boðskort. Það var ótrúlega gaman að sjá þennan flotta hóp koma fram með allt sitt á hreinu. ?

© 2016 - Karellen