Innskráning í Karellen
news

​Konur leggja niður störf

18. 10. 2023

Kæru foreldrar og forráðafólk,

Stéttarfélög og samtök kvenna hafa hvatt konur og kvár til að leggja niður störf þann 24. október næstkomandi og vekja þannig athygli á kynbundnum launamun og kynbundnu ofbeldi á Íslandi og heiminum öllum.

Þar sem í okkar tilfelli, er um að ræða hefðbundin kvennastörf þá kjósum við að leggja baráttunni lið og leggja niður störf þennan dag.

Ef sú staða er uppi hjá einhverjum foreldrum að það hafi áhrif á almannaöryggi og engin önnur úrræði til staðar, þá bið ég viðkomandi að hafa samband við mig.

Við reiknum með að samfélagið allt muni standa upp og styðja verkfallið á þessum alþjóðlega baráttudegi kvenna.


Kær kveðja

Ingibjörg Einarsdóttir

© 2016 - Karellen